Framlengdur umsóknarfrestur: Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf
Um er að ræða tvær 100% stöður leikskólakennara/leiðbeinanda
Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starf í leikskólann Krummakot. Frekari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang hugruns@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2017. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
03.03.2017