Um er að ræða:
- 100% stöðu vegna leyfis
- 100% stöðu vegna fæðingarorlofs.
Leikskólinn er staðsettur í Hrafnagilshverfinu, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar, í umhverfi sem hefur upp á einstaka möguleika að bjóða til útivistar og hreyfingar. Deildir eru þrjár og nemendur rúmlega 60 á aldrinum eins til sex ára. Unnið er í samræmi við uppeldisstefnu Jákvæðs aga og markvisst unnið með málrækt og læsi, dygðir, umhverfisstarf, hreyfingu og tónlist.
Hæfniskröfur eru:
- Leyfisbréf sem leikskólakennari
- Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
- Lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga. Ef ekki fæst leikskólakennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun í störfin eru aðrar umsóknir teknar til skoðunar. Launakjör eru þá samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju og Launanefndar sveitarfélaga.
Krummakot vinnur markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnustaðnum og hvetur karla jafnt sem konur að sækja um starfið. Það er til samræmis við jafnréttislög no. 10/2008
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og nöfn meðmælenda sem hafa má samband við.
Allar nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir leikskólastjóri í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is
Heimasíða Krummakots er www.krummi.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2017.