Gísli Einarsson mun setja hátíðina
Setning Handverkshátíðar 2010 verður klukkan 11:30 föstudaginn 6.ágúst. Gísli Einarsson ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni og setja hátíðina formlega þetta árið.
Setning Handverkshátíðar 2010 verður klukkan 11:30 föstudaginn 6.ágúst. Gísli Einarsson ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni og setja hátíðina formlega þetta árið.
388. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar, sem jafnframt verður fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar, verður haldinn að Syðra Laugalandi, þriðjudaginn. 22. júní n.k. og hefst kl. 15:00. Dagskrá fundarins má sjá á upplýsingatöflu á skrifstofu sveitarfélagsins sem og hér á heimasíðu sveitarinnar.
Smámunasafnið í Sólgarði sunnudaginn 20. júní milli kl. 13 og 17.
Í aðalhlutverki verður International 1020 jarðvinnsludráttarvél frá árinu 1930. Þetta er fyrsta jarðvinnsluvélin sem Eyfirðingar
eignuðust. Stórmerkilegvél og lítur svo ljómandi vel út eftir að Baldur Steingrímsson og feiri fóru höndum um hana. Vélin er
nú gangfær og áhugasamir geta fengið að aka henni.
Á sama stað og tíma verður kvenfélagið Hjálpin með flóamarkað,. Til sölu verður allt mögulegt fyrir heimilið og
fjölskylduna. Nýsoðin chilisulta þessi góða sem við vorum með á Handverkshátíðinni í fyrra, broddur og rabbarbarii. Við
munum svo dreifa ágóðanum í góð málefni að vanda. Hafið íslenskar krónur með, því við höfum ekki
posa.
Umsóknirnar streyma inn :-)
Umsóknarfresturinn rennur út 10. júní n. k..... Sjá
nánar á http://handverkshatid.is