Ferðamálastofa hefur auglýst til umsókna styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010.
Auglýsingu Ferðamálastofu og nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með tillögu að tveim reiðleiðum í Eyjafjarðarsveit. Auglýst er ný leið,
héraðsleið 8, frá Miðbraut að Bringu, að mestu leyti meðfram Eyjafjarðarbraut eystri (829) og reið- og gönguleið, héraðsleið 2,
norðan Miðbrautar (823), frá hitaveituvegi að Eyjafjarðará.
Skipulagið ásamt greinargerð er til sýnis á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar og á heimasíðu sveitarfélagsins www.eyjafjardarsveit.is.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að gera athugasemdir við
tillögurnar er til og með 28. desember 2009. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skrifstofu Eyjafjarðarsveitar. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögunar
fyrir auglýstan frest telst samþykkur þeim.
13. nóvember 2009
Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar
Tónleikaviku Tónlistarskóla Eyjafjarðar er
nýlokið en haldnir hafa verið tónleikar á ýmsum stöðum á starfssvæðinu, s. s. öllum grunn- og leikskólunum,
Kristnesspítala og í fjósinu Stóra Dunhaga 1.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar fékk einnig að njóta þessa, þegar Elvar Jóhann Sigurðsson gítarnemi kom á sveitarstjórnarfund
í gær þriðjudag og spilaði fyrir fundarfólk.
Handverkshátíðin 2009 sú fjölmennasta til þessa.
S. l. mánudag 2. nóvember, afhentu fulltrúar sýningarstjórnar Handverkshátíðar á Hrafnagili félagasamtökum sem unnu að
sýningunni styrki vegna vinnuframlags þeirra í tengslum við framkvæmdina. Sýningin sem haldin var á Hrafnagili dagana 7. – 10. ágúst
var sú best sótta í sautján ára sögu Handverkshátíða á Hrafnagili þar sem um 20.000 gestir heimsóttu
hana.
Líkt og undanfarin ár veitir umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar umhverfisverðlaun til þeirra íbúa sveitarinnar sem þykja skara fram
úr hvað varðar umgengni og snyrtilegt umhverfi.
Undanfarin ár hafa yfirleitt verið veittar viðurkenningar í tveimur flokkum, annars vegar til býlis þar sem stundaður er hefðbundinn landbúnaður
og hins vegar til stakra húsa.
Í ár ákvað nefndin að bregða út af venjunni og veita viðurkenninguna til íbúa í götunni Fosslandi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í túninu á Litla-Hóli nú í vor, þegar sauðburður stóð sem
hæst, en þá var tófan orðin þar daglegur gestur. Nokkrum dögum síðar fannst greni í fjallinu og náðust þar 6 dýr en
eftir það hefur þó sést til tófu á túnum bæjarins og á fjalli.