Kynningarfundur um efnisnámu í Hvammi
Í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, boðar sveitarstjóri til almenns kynningarfundar um tillögu að deiliskipulagi efnisnámu í landi Hvamms, Eyjafjarðarsveit.
Kynningarfundurinn verður haldinn í fundarherbergi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, 2. hæð þriðjudaginn 17. maí kl. 16:10 -17:00. Á fundinum mun fulltrúi frá Teiknistofu Arkitekta sem unnið hefur deiliskipulagstillöguna kynna hana og svara spurningum.
12.05.2016