Sumarstarf - heimaþjónusta og fleira
Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingar í heimaþjónustu. Starf í heimaþjónustu er um 60% en til greina kemur að ráða í allt að 100% starf og viðkomandi sinni þá öðrum verkefnum, t.a.m. á tjaldsvæði.
Í starfinu felst að sjá um almenn þrif í heimahúsum, fara sendiferðir (t.d. innkaup) og veita persónulega aðstoð. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum, hefur almenna kunnátta við þrif og er stundvís og heiðarlegur. Bílpróf er skilyrði og viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2018.
21.03.2018