Fjallskil haustið 2018
Á fundi fjallskilanefndar 24. júlí voru samþykktir eftirfarandi gangnadagar fyrir haustið 2018.
1. göngur í Öngulsstaðadeild sunnan Fiskilækjar verði föstudaginn 31. ágúst og laugardaginn 1. september. Norðan Fiskilækjar og í Hrafnagils- og Saurbæjardeild verður gengið 8.-9. september.
2. göngur verði tveim vikum síðar þ.e. 14.-15. september og 21.-22. september.
Hrossasmölun verður föstudaginn 5. október. Stóðréttir verði 6. október
Ef efni eru til eftirleitar skal miðað við að þær verði farnar eigi síðar en 21. október.
25.07.2018