Um er að ræða 100% stöður deildarstjóra/leikskólakennara/leiðbeinanda
Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólann Krummakot.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.
Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:
- Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
- Lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2018. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is