Verkið felur í sér malbikun á götu, gangstétt og lagningu kantsteins. Helstu magntölur eru: Malbikun gata AC11 (t=50 mm )2200 m2 Malbikun gangstétt AC8 (t=50 mm) 820 m2 Staðsteyptir járnbentir kantsteinar, hæð 10-12 cm 480 metrar.
Verklok skulu vera eigi síðar en 21. september 2018.
Kynningarfundur og/eða vettvangsskoðun verður haldin með bjóðendum 9. júlí 2018 kl. 13:00 á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, 2. hæð. Bjóðendur eru einnig hvattir til að kynna sér aðstæður á verkstað.
Afhending gagna er frá 6. júlí 2018.
Þeir sem óska eftir útboðsgögnum skulu gera það með því að senda tölvupóst á netfangið esveit@esveit.is með efnislínu (e. subject) Bakkatröð Malbik 1807010.