Sundnámskeið fyrir tilvonandi fyrstu bekkinga
UMF Samherjar ætla að bjóða tilvonandi fyrstu bekkingum í Hrafnagilsskóla upp á sundnámskeið í vikunni 16. – 20. ágúst n.k. Um er að ræða börn sem fædd eru 2015. Námskeiðið verður í fimm skipti, frá mánudegi til föstudags. Lagt er upp með tvo hópa, sá fyrri kl. 14-15 og seinni kl. 15-16. Venjulega eru börnin ofan í lauginni í um 35 mínútur. Kennari verður Kolfinna Ólafsdóttir sem hefur reynslu í umsjón með námskeiðum af þessu tagi.
Skráningargjald er kr. 5.000.- og verða sendar út kröfur í netbanka. Skráningu skal senda á netfangið samherjar@samherjar.is með upplýsingum um nafn og kennitölu barns og kennitölu greiðanda.
Við lítum á þetta sem gott tækifæri fyrir nýja grunnskólanemendur að koma og þjálfa sig í umgengni í búningsherbergjum og sundlauginni sjálfri áður en skólastarfið hefst.
Stjórn UMF Samherja.
12.08.2021
Fréttir