Um er að ræða fullt sumarstarf fyrir konu, þar sem helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, þjónusta og afgreiðsla viðskiptavina í íþróttamiðstöð og á tjaldsvæði og þrif skv. daglegum gátlistum.
Hæfniskröfur:
Vera orðin 18 ára
Geta staðist hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum
Hafa gott vald á íslensku og ensku
Hafa góða athyglisgáfu
Vera sjálfstæð í vinnubrögðum
Geta sýnt yfirvegun undir álagi
Hafa ríka þjónustulund
Vera stundvís
Vera jákvæð
Hafa hreint sakavottorð
Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambandsins.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí. Umsóknir, ásamt kynningarbréfi, ferilsskrá og lista yfir meðmælendur skulu sendar á netfangið karlj@esveit.is. Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar í síma 691-6633 á vinnutíma.