Forsetakosningar 1. júní 2024 - Ath. uppfært gsm númer!

Fréttir

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Bent er á að ef nota á stafræn ökuskírteini þá þarf að huga að uppfærslu þeirra áður en komið er á kjörstað. 

Þeim sem eiga erfitt með gang er heimilt að aka út að skóla.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á kjörstað má finna á https://island.is/hvernig-er-kosid 
Upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má finna á https://island.is/v/forsetakosningar-2024/kosning-utan-kjorfundar 

Kjörskrá er aðgengileg á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar auk þess sem finna má upplýsingar um sinn kosningarstað á https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/forsetakosningar/ 

Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 894-1372.
Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit 11. maí 2024.

Einar Jóhannsson, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og Þór Hauksson Reykdal