Fræðsla fyrir íþróttafólk
UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Hrafnagili þriðjudaginn 2. desember.
Fyrirlestrarnir eru ætlaðir íþróttafólki, 11 ára og eldri. Þeir fara fram í Hrafnagilskóla og hefjast kl. 17:00 og 18:15. Stutt hlé verður á milli þeirra og boðið upp á léttar veitingar. Ekkert þátttökugjald er að fyrirlestrinum og eru foreldrar sérstaklega velkomnir.
27.11.2014