Opnunartími sundlaugar um verslunarmannahelgina
Sundlaugin verður opin alla verslunarmannahelgina
laugardag til mánudags frá kl. 10:00 - 20:00.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Sundlaugin verður opin alla verslunarmannahelgina
laugardag til mánudags frá kl. 10:00 - 20:00.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Þung högg eldsmiðsins og háreysti kaupmanna í bakgrunni ásamt sverðaglamri kappsfullra fornmanna blandast hlátrasköllum barna á MIÐALDADÖGUM á Gásum í Eyjafirði 16.-19. júlí. Þetta er hluti af þeirri miðaldamynd sem gestir geta upplifað þar. Á MIÐALDADÖGUM færist líf í Gásakaupstað sem var forn verslunarstaður á miðöldum. Handverksfólk, íklætt miðaldaklæðnaði, vinnur að leður- og vattarsaumi, jurtalitun, reipisgerð, tálgun í tré, spjaldvefnaði, boga- og örvagerð svo eitthvað sé nefnt.
Eyjafjarðarsveit hefur flutt sveitarskrifstofu sína frá Syðra-Laugalandi í nýuppgert húsnæði
að Skólatröð 9, áður heimavist Hrafnagilsskóla.
Vert er að vekja athygli á nýju símanúmeri skrifstofunnar sem er 463 0600, en netfang skrifstofu er óbreytt, esveit@esveit.is
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar opnar á morgun, þriðjudaginn 21. júní í nýju húsnæði
að Skólatröð 9 (heimavistarhúsi Hrafnagilsskóla).
Nýtt símanúmer skrifstofu verður 463 0600 en í dag má ná í sveitarstjóra Jónas Vigfússon í gsm: 861 8286 og
skrifstofustjóra Stefán Árnason í gsm: 864 6444.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar verður lokuð miðvikudaginn 15. júní og fimmtudaginn 16. júní
n.k. Mánudaginn 20. júní opnar skrifstofan í nýju húsnæði að Skólatröð 9 ( heimavistarhús
Hrafnagilsskóla ). Opnunartími skrifstofu verður óbreyttur þ.e. frá kl. 10 – 14. Nýtt símanúmer
skrifstofu verður 463-0600.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
404. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn að Syðra Laugalandi,
þriðjudaginn 14. júní 2011 og hefst kl. 15:00.
OPIÐ
HVÍTASUNNUDAG 12. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00
ANNAN HVÍTASUNNUDAG 13. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00
Hvað áttu Þórður kakali og Guðmundur dýri sameiginlegt? Hvað voru Gásir og hverjir komu þangað og hvað gerðu þeir? Langar þig að kynnast sögu kaupstaðarins? Svörin við þessum spurningum fást þegar gengið verður um minjasvæði þessa forna kaupstaðar laugardaginn 11. júní kl 14.
Fermingar- og hátíðarmessa á hvítasunnudag verður í Grundarkirkju 12. júní kl. 11. Fermd verða Auðunn Freyr
Hlynsson, Kvistur, Ásdís Hrefna V Laufeyjardóttir, Arnarfell 2, Bergljót Gunnarsdóttir, Heiðarlundi 7b, Bjarki Rúnar Sigurðsson,
Brúnahlíð 1, Fjölnir Brynjarsson, Hólsgerði, Friðrik Karlsson, Hrafnagilsskóli, Ingvi Guðmundsson, Syðra-Fell, Katla Mjöll
Gestsdóttir, Jódísarstaðir 3, Kristjana Líf Arnarsdóttir, Hranastaðir, Monika Rögnvaldsdóttir, Vallartröð 1, Óðinn
Snær Óðinsson, Sunnutröð 8 og Örn Ævarsson, Fellshlíð. Kór Lauglandsprestakalls leiðir sönginn undir stjórn Daníels
Þorsteinssonar, organista og kórstjóra.
Sr. Guðmundur Guðmundsson