Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í fyrsta áfanga viðbyggingar við Hrafnagilsskóla. Um er að ræða steypu sökkla og botnplötu ásamt lagnavinnu.
Helstu magntölur í verkinu eru:
- Undirstöðu- og veggjamót um 850 m2
- Bendistál um 15.500 kg
- Steypa um 320 m³
- Einangrun sökkulveggja um 300 m2
- Einangrun botnplötu um 850 m2
- Jarðvatnslagnir um 155 m
- Frárennslislagnir um 200 m
- Gólfhitalagnir í botnplötu um 4900 m
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2022.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 14.febrúar 2022. Beiðni um afhendingu gagna skal send í tölvupósti á netfangið rab@verkis.is
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Austursíðu 2, 603 Akureyri þann 3. mars 2022 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Frétt hefur verið uppfærð.