Við viljum þakka öllum þeim bæjum og húsum sem tóku þátt í bæjakeppninni og styrktu þar með starf hestamannafélagsins Funa.
Úrslit voru eftirfarandi:
Barnaflokkur
- Kristján Árni Birgisson á Sálmi frá Skriðu, kepptu þeir fyrir Breiðablik
- Sindri Snær Stefánsson á Vísi frá Árgerði, kepptu þeir fyrir Samkomugerði 2, Hönnu og Baldvin
- Bergþór Bjarmi Ágústsson á Hraftinnu frá Kálfagerði, kepptu þau fyrir Samkomugerði 1
Unglingaflokkur
- Sara Þorsteinsdóttir á Gusti frá Grund, kepptu þau fyrir Ytra-Laugaland 2
Í ungmennaflokki var enginn keppandi en bikarinn var dreginn í Kristnes 6, Anna Rappich
Kvennaflokkur
- Jóhanna Schulz á Karen frá Árgerði, kepptu þær fyrir Kvist
- Rósa Hreinsdóttir á Gusti frá Halldórsstöðum, kepptu þau fyrir Hjallatröð 1
- Anna Kristín Árnadóttir á Efa frá Fornhaga 2, kepptu þau fyrir Festarklett
Karlaflokkur
- Stefán Birgir Stefánsson á Eldborgu frá Litla-Garði, kepptu þau fyrir Holtselsbúið
- Sveinn Ingi Kjartansson á Leiru-Björk frá Naustum, kepptu þau fyrir Hjallatröð 2
- Jacob-jan Rijnberg á Jarl frá Árgerði, kepptu þeir fyrir Skálpagerði
Farandbikarinn dróst þetta árið á Ytra-Laugaland 2 til Þorgerðar og Daníels
Bestu kveðjur frá stjórn, mótanefnd og húsnefnd Funa