Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra veitir verkefnastyrki til menningarverkefna og stofn og rekstrarstyrki til menningarmála. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019.
Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.
- Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
- Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
- Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
- Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista
Við mat á umsóknum um stofn og rekstrarstyrki lítur uppbyggingarsjóður til eftirtalinna atriða
- Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs
- Stuðla að nýsköpun í menningarstarfi
- Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu
Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar. Tilkynnt verður um úthlutun í apríl. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs sem finna má hér.
Nánari upplýsingar um styrki til menningar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menning@eything.is sími 464 9935. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangiðuppbygging@eything.is
Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar verða sem hér segir:
Akureyri 21. og 22. janúar 13-15 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð
Hrísey 26. janúar kl. 10-10.50 Húsi Hákarla Jörundar
Grenivík 26. janúar kl. 14-15 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
Dalvík 27. janúar kl. 10-12 Ráðhúsinu á Dalvík, 3.hæð
Ólafsfjörður 27. janúar kl. 13-14 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Siglufjörður 27. janúar kl. 14.30-16 Bæjarskrifstofu Siglufjarðar
Laugum 1. febrúar kl. 11-12 Skrifstofu Þingeyjarsveitar
Mývatnssveit 1. febrúar kl. 13-14 Skrifstofu Skútustaðahrepps
Kópasker 3. febrúar 10.30-12 Skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn 3. febrúar kl. 13-15 Skrifstofu Norðurþings
Þórshöfn 4. febrúar kl. 9-11 Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn
Húsavík 4. febrúar kl. 14-16 Menningarmiðstöð Þingeyinga
Akureyri 8. febrúar kl. 9-16 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð
Grímsey Auglýst síðar
Vitalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi