Ungmennasamband Eyjafjarðar, í samstarfi við Æskulýðsvettvanginn, mun standa fyrir námskeiðinu "Verndum þau" á Dalvík og Hrafnagili.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna.
Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Verndum
þau. Höfundar bókarinnar stýra námskeiðinu; Ólöf Ásta Farestveit er uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg
Sveinsdóttir er með BA í sálfræði. Þær starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
• Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
• Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru
þolendur ofbeldis.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
13. nóvember Dalvíkurskóli, kl. 16:30-19:30
14. nóvember Félagsborg á Hrafnagili kl. 16:15-19:15
Skráning fer fram í tölvupósti: umse@umse.is og í síma: 868-3820 Skráningarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 12. nóvember.
Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið.
Frekari upplýsingar veitir skrifstofa UMSE