Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar hefur reglubundið veitt verðlaun fyrir framúrskarandi umgengni og snyrtimennsku. Atvinnu- og umhverfisnefnd óskar hér með eftir tilnefningum frá íbúum Eyjafjarðarsveitar fyrir annars vegar fyrirtæki eða bújörð og hins vegar fyrir íbúðarhús og nærumhverfi þess.
Einnig má gjarnan koma ábendingum á framfæri til nefndarinnar um einstaklinga sem hafa beitt sér sérstaklega í þágu umhverfismála í Eyjafjarðarsveit. Tilnefningar og ábendingar þurfa að berast fyrir 1. júlí til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar á netfangið esveit@esveit.is
Atvinnu- og umhverfisnefnd.