Kæru foreldrar
Nú er orðið ljóst að skólahald mun raskast á morgun fimmtudaginn 12.desember. Við opnum kl: 10 ef að veður og færð leyfa.
Enginn skóli verður frá 7:30-9:55 en skoðað verður með að opna kl: 10 fyrir þá nemendur sem að komast. Opnunin verður einnig skoðuð með tilliti til hvort starfsfólk komist til vinnu.
--
Hið árlega jólaball sem átti að vera á morgun verður frestað.
Við biðjum ykkur að fylgjast vel með í fyrramálið í gegnum tölvupóst og tilkynningarsíðuna okkar á fésbókinni. Upplýsingar um skólahald mun liggja fyrir ekki seinna en klukkan níu á morgun.
Kær Kveðja
Erna Káradóttir
Skólastjóri á Krummakoti