Þann 6. febrúar s. l. var Dagur leikskólans og í tilefni hans ætlum við í Krummakoti að halda sýningu á verkum barnanna í
Blómaskálanum Vín. Sýningin mun standa yfir í 2 vikur.
Kveðja frá Leikskólanum Krummakoti.
Dagur leikskólans 6. febrúar
Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og
því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag
fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og
skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og
kynna starfið út á við.
Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan
hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur“, foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi,
vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum.
Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu
starfi leikskólanna.