Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir eftir aðila í afleysingu til eins árs í 50 % stöðu starfsmanns á skrifstofu. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar er byggðasamlag sem annast skipulags- og byggingarmál í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit og mun nýr starfsmaður annast verkefni á skrifstofu byggðasamlagsins. Starfið felst í móttöku erinda og símavörslu og fer fram á skrifstofu embættisins, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.
Meðal verkefna starfsmannsins verða: |
Hæfni- og menntunarkröfur |
Byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs. var stofnað árið 2017 og annast það skipulags- og byggingarmál í aðildarsveitarfélögum skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og mannvirkjalögum nr. 160/2012. Starfstöð byggðasamlagsins er í Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi.
Umsóknarbréf og ferilskrá í pdf sniði skulu send í tölvupósti í síðasta lagi 13. nóvember 2024 á netfangið sbe@sbe.is. Kostur er ef nýr starfsmaður getur hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir skipulags- og byggingarfulltrúi, í síma 463-0621.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar
Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri – s: 463-0621