Á yfirstandandi skólaári hefur verið gerð tilraun með samþættingu skólaaksturs og almenningssamgangna í sveitarfélaginu.
Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri var fengin til að gera könnun í Eyjafjarðarsveit um ýmis mál
þessu tengd í sveitarfélaginu. Könnunin var framkvæmd þannig að hringt var í öll heimili í sveitarfélaginu og spurt nokkurra
spurninga er varðaði málefnið. Í gær kynntu fulltrúar RHA niðurstöðurnar fyrir sveitarstjórn, skólanefnd, stjórn
foreldrafélagsins, skólaráði og skólastjórnendum.
Niðustöður könnunarinnar má sjá hér.