Þar sem almannavarnir hafa gefið út rauða viðvörun fyrir svæðið milli klukkan 10 og 16 á morgun fimmtudag, hefur verið ákveðið að aflýsa öllu skólahaldi í Eyjafjarðarsveit á morgun. Skólarnir verða því lokaðir og ekkert starfsfólk í húsi. Þá verður bókasafnið einnig lokað. Íþróttamiðstöðin verður opin til klukkan 8:00 en ákvörðun um síðdegisopnun verður tekin í fyrramálið.
Tilkynning frá Hrafnagilsskóla:
Almannavarnir hafa gefið út rauða veðurviðvörun fyrir svæðið frá kl. 10:00 til 16:00 og því ekkert vit að senda skólabíla af stað í fyrramálið þar sem ljóst er að ekki verður hægt að keyra heim. Af þessum sökum verður skólinn lokaður og ekkert starfsfólk í húsi.
Bókasafnið verður líka lokað þennan dag.
Tilkynning frá Krummakoti:
Skóla aflýst á morgun fimmtudaginn 6. febrúar 2025
Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að aflýsa skólahaldi í Krummakoti á morgun fimmtudaginn 6. febrúar. Almannavarnir hafa gefið út rauða veðurviðvörun fyrir svæðið frá kl. 10:00 til 16:00 og því ekkert vit að senda alla af stað í fyrramálið þar sem ljóst er að ekki verður hægt að keyra heim. Af þessum sökum verður skólinn lokaður og ekkert starfsfólk í húsi.