Í vinnu við gerð fjárhagsáætlana fyrir árið 2009 fór á stað naflaskoðun á öllum
útgjöldum sveitarsjóðs. Boðað var til vinnufunda allra nefnda og stjórnenda sveitarfélagsins síðastliðinn
laugardag. Góð mæting nefndarmanna og ágætlega skipulögð dagskrá skilaði góðri vinnu þennan dag.
Á þessum vinnufundum voru allir útgjaldaliðir nefnda skoðaðir og krufðir til mergjar.
Á þriðjudag verður fyrri umræða í sveitarstjórn um fjárhagsáætlun og bendir ekkert til annars en okkur takist
að leggja fram hallalausa áætlun. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður það að teljast
góður árangur og gefur okkur vonir um að sveitarfélagið komi sterkt út úr þessum hremmingum. Sparnaður í rekstri nú gefur
okkur tækifæri og von um að fjárfestingar í grunnþjónustu sveitarfélagsins verði með eðlilegum hætti. Ég
sjálfur hef ekki gefið upp vonina um að okkur takist að hefja framkvæmdir við byggingu leikskóla innan ekki langs tíma. Sveitarstjóri.