Á 339. fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar sem haldinn var 15. janúar var tekið í notkun OneMeeting – Fundabókunarkerfi. Kerfinu er ætlað að auðvelda og flýta fyrir gerð fundarboða og sparar þannig mikinn tíma.
Fundarkerfið sér um að senda fundarboð til sveitarstjórnar og nefndarmanna. Jafnframt er fundarboðið sett í nefndarmannagátt
þar sem fulltrúar í sveitarstjórn eða nefnd geta nálgast þau, ásamt öllum gögnum sem fundarboðinu fylgja. Með þessu
móti mun ekki einungis sparast mikill tími heldur einnig mikill pappír þar sem þetta tengist OneRecords – málakerfinu þar sem öll skjöl
sem berast sveitarfélaginu eru skönnuð og vistuð í málakerfinu. Eftirleiðis mun því fundarboð ásamt fundargögnum sent rafrænt
og fulltrúar í sveitarstjórn vera með tölvur á fundum sveitarstjórnar í stað gagna á pappír.