Hátíðin er opin í dag mánudag kl. 12-19.
Metaðsókn var á hátíðina um helgina því 15.000 manns hafa sótt hátíðina heim.
Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól hefur skapað frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu.
Hönnunarsamskeppni um nýsköpun í ullarvörum var í tengslum við sýninguna og þá þótti við hæfi að sýna
rúning á ullinni. Birgir Arason rúningsmaður sýnir daglega vélrúning og fékk um helgina til liðs við sig konur í sveitinni
með rokkinn og sátu þær við spuna.
Margt er um óvenjulegt hráefni á svæðinu sem hefur vakið eftirtekt. Tískusýningar, fyrirlestrar og námskeið krydda dagskrána
í hvívetna.
Að þessu sinni er staðið að hátíðinni á annan máta en verið hefur því félögin í sveitinni hafa lagt
hönd á bagga. Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi, þrjú kvenfélög Aldan/Voröld, Hjálpin og Iðunn, Ungmennafélagið Samherjar og
Hjálparsveitin Dalbjörg ásamt gríðarlegum fjölda tónlistarfólks og skemmtikrafta, allt fólk sem tengist Eyjafjarðarsveit á einn
eða annan hátt.
Handverkskona ársins 2009 var verðlaunuð á kvöldvöku á laugardagskvöldinu og þann titil hlaut Guðrún Ásgerður
Steingrímsdóttir handverkskona með meiru.
Síðasti opnunardagur vel heppnaðrar sýningar er í dag, mánudag milli 12-19.