Styrkúthlutun tekur til eftirfarandi flokka:
o Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að
ræða málefni á sviði félagsmála, minja, lista og almennt þeirra málefna sem flokkast sem menning í víðtækri
merkingu.
o Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í þessum flokki er horft til stærri verkefna á sviði
menningarmála á félagssvæði KEA.
o Til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek s.s. á sviði
björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
o Styrkir til íþróttamála. Markmiðið er að stuðla að því að sem flest börn og unglingar eigi kost á
íþróttaiðkun og að íþróttamenn eða lið sem skara fram úr geti stundað markvissar æfingar og sótt mót við
sitt hæfi. Einnig falla hér undir verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að heilbrigðum lífstíl almennings eða snúa að uppbyggingu
á aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari útlistun á úthlutunarflokkum og reglugerð sjóðsins á heimasíðu KEA
www.kea.is
Umsóknarfrestur er til 30. september 2012. Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á
heimasíðunni eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, 600 Akureyri.