Í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit eru til sölu lóðir við Bakkatröð. Í innan við 300 m fjarlægð eru grunnskóli, leikskóli, tónlistarskóli, íþróttahús og sundlaug. Eyjafjarðarsveit er blómlegt sveitarfélag
þar sem búa rúmlega 1000 manns bæði í dreifbýli og þéttbýli.
Sveitarfélagið stendur vel og veitir íbúum góða þjónustu.
- Verð fyrir hverja lóð er kr. 400.000
- Lóðirnar sem um ræðir eru fimm einbýlishúsalóðir við Bakkatröð nr. 1, 2, 5, 7 og 52
- Frestur til að senda inn kauptilboð er til 30. nóvember 2015
- Greiða þarf lóðaverðið fyrir 31. desember 2015
- Ljúka þarf fullnaðarfrágangi að utan, bæði á lóð og húsi fyrir 31. desember 2017
- Nánari skilmálar eru birtir á www.esveit.is
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar s: 463-0600