LEIKSKÓLINN KRUMMAKOT AUGLÝSIR EFTIR KENNARA og starfsmanni í sérkennsluteymi skólans
- Kennari í 100% starf
- Starfsmann í sérkennsluteymi skólans, iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, leikskólakennara/sérkennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða tímabundna ráðningu með möguleika á áframhaldandi ráðningu í 100% eða 50% og 50% stöðu.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 69 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2024/2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.
Menntunar- og hæfniskröfur |
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2023.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is