Eyjafjarðarsveit auglýsir lausa til umsóknar stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Krummakoti. Leitað er eftir jákvæðum og drífandi leiðtoga með framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Leikskólinn Krummakot er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar, í barnvænu umhverfi sem hefur upp á einstaka möguleika að bjóða til útivistar, hreyfingar og tónlistar. Krummakot er þriggja deilda leikskóli með um 60 nemendur á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.
Starfssvið:
- Að veita leikskólanum faglega forystu á sviði uppeldis og kennslu.
- Að leiða samstarf starfsmanna, heimila og leikskólans.
- Að stýra leikskólanum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fagstarfi, starfsmannamálum, fjárhagsáætlun og rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf leikskólakennara og kennslureynsla á leikskólastigi.
- Viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla af stjórnun.
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Leiðtogahæfileikar, faglegur metnaður og hugmyndaauðgi.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta.
Eyjafjarðarsveit er blómlegt og öflugt 1.000 manna samfélag. Í Hrafnagilshverfi eru auk leikskólans grunnskóli, tónlistarskóli og íþróttamiðstöð.
Umsóknir um starfið sendist á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, 601 Akureyri, eða á netfang skrifstofustjóra, stefan@esveit.is merkt „Leikskólastjóri 1706018“ í efnislínu (e. subject). Með umsókn skal fylgja leyfisbréf leikskólakennara, ferilskrá ásamt tilvísun til tveggja meðmælenda og kynningarbréf sem tilgreinir m.a. ástæður umsóknar og rökstuðning fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skulu hafa borist á skrifstofu eða í tölvupósti eigi síðar en 3. júlí 2017.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ f.h. Félags stjórnenda leikskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Árnason, skrifstofustjóri, í síma 463-0600.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.