Lausar stöður í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit

Fréttir

 

Lausar stöður í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit.
Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Skólinn hefur skapað sér afar gott orðspor í gegnum tíðina og samanstendur af frábærum mannauði. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.


Starfsmaður í frístund og afleysing skólaliða
Inn í öflugan og skemmtilegan starfsmannahóp Hrafnagilsskóla vantar starfsmann í frístund
næsta skólaár og er vinnutíminn frá kl. 14:00 til 16:00. Við óskum einnig eftir að ráða
manneskju í tilfallandi afleysingar fyrir skólaliða. Til greina kemur að sama manneskjan sinni
báðum störfunum.


Leitað er eftir starfsmanni sem:
➢ Sýnir metnað í starfi.
➢ Er fær og lipur í samskiptum.
➢ Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
➢ Er lausnamiðaður.


Nánari upplýsingar veita Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri og Björk Sigurðardóttir
aðstoðarskólastjóri í síma 464-8100. Sótt er um stöðurnar með því að senda umsókn og
ferilskrá með netpósti á netfangið asa@krummi.is og bjork@krummi.is