Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli u.þ.b. 12 km. fyrir innan Akureyri og eru u.þ.b. 170 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli er heilsueflandi grunnskóli og uppeldisstefnan er Jákvæður agi. Skólaþróun síðustu ár hefur m.a. snúist um heilsueflingu, tölvur og tækni.
Grunnskólakennari/sérkennari í sérdeild
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2022. Um er að ræða sérkennarastöðu í sérdeild unglingsstúlkna sem dvelja á Meðferðarheimilinu að Laugalandi.
Leitað er eftir kennara sem:
- Hefur reynslu af kennslu á unglingastigi.
- Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
- Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
- Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
- Sýnir árangur í starfi.
- Er fær og lipur í samskiptum.
- Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
Menntun í sérkennslufræðum er æskileg.
Grunnskólakennari á yngsta stigi
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 80% starfshlutfall frá 1. ágúst 2022. Í starfinu felst:
- Námsstuðningur við nemendur og samvinna við kennara og starfsfólk.
Leitað er eftir kennara sem:
- Hefur kennaramenntun.
- Sýnt hefur árangur í starfi.
- Hefur áhuga á og færni til að nýta tækni í skólastarfi.
- Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
- Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
- Er í góðri samvinnu við foreldra og allt starfsfólk.
- Er fær og lipur í samskiptum.
- Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hefur reynslu og þekkingu á Byrjendalæsi og fleiri kennsluaðferðum.
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2022.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur; Hrund Hlöðversdóttir og Björk Sigurðardóttir í símum 464-8100 og 699-4209 eða á netföngin hrund@krummi.is og bjork@krummi.is
Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is