Landbúnaðarsýning við Hrafnagil 10. – 13. ágúst n.k.

Landbúnaðarsýningin við Hrafnagil verður sett með Handverkshátíð föstudaginn 10. ágúst n.k. Sýningin verður umfangsmikil og fjölbreytt en yfirlitsmynd af svæðinu má sjá hér.

Í Þekkingarsetri landbúnaðarins kynna landbúnaðarháskólarnir að Hólum og Hvanneyri starfssemi sína ásamt flestum búgreinasamtökum landsins.

Litli bændaskóli Bústólpa verður settur á laggirnar í mötuneyti Hrafnagilsskóla. Þar gefst krökkum og unglingum frá 10 ára aldri færi á að fræðast um íslenskan landbúnað. Skólanum lýkur með heimsókn í eitt tæknivæddasta fjós landsins. Nánari upplýsingar um skólann má sjá hér. Skráning á netfangið litlibaendaskolinn@esveit.is

Afurðastöðvar og samtökin Beint frá Býli kynna starfssemi sína í sýningartjaldi.

Á útisvæði sýna vélaumboð nýjar vélar og búvélasafnarar eldri vélar.

Félag ungra bænda á Norðurlandi stendur fyrir landskeppninni „Ungbóndi ársins“ og félagið sér einnig um kálfasýningu þar sem börn keppa í teymingu og skreytingu smákálfa. Verðlaukaafhending á hátíðarkvöldvöku á laugardagskvöldinu.

Landssambands kúabænda heilgrillar naut og Landssamband sauðfjárbænda heilgrillar lamb.

Húsdýrasýning, fjárhundasýning, hestasýning, sýning og keppni í rúningi.

Á svæðinu verður veitingasala og lifandi tónlist alla dagana.
Opið föstudag – sunnudags kl. 12–19 og mánudag kl. 12-17.

Nánari dagskrá má sjá hér.