Í undirbúningi er að flytja ábyrgð á þjónustu við aldraða frá ríki til sveitarfélaga árið 2015.
Félagsmálanefnd Eyjafjarðarsveitar leitaði þess vegna til iðjuþjálfunarfræðideildar Háskólans á Akureyri og
óskaði eftir samstarfi um könnun á þjónustu og búsetuúrræðum í sveitarfélaginu. Nefndin hugar að
framtíðarstefnumótun og vantaði gögn um viðhorf, óskir og þarfir aldraðra íbúa sveitarfélagsins til að taka mið af við
þá vinnu.
Könnunin var unnin sem lokaverkefni til B.Sc. prófs í iðjuþjálfunarfræðum og unnin af þeim Arndísi Jónu Guðmundsdóttur,
Jónínu Hörpu Njálsdóttur og Lillý Rebekku Steingrímsdóttur.
Nú má lesa könnunina: " Bómleg búseta og þróun þjónustu" hér á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.