Kjör íþróttamanns UMSE fer fram að Rimum í Svarfaðardal næsta fimmtudag, 22. janúar kl. 18:00 Árið 2014 var gott íþróttaár á starfssvæði UMSE og munu um fimmtíu einstaklingar fá viðurkenningu að þessu sinni. Hápunkturinn að venju verður svo lýsing á kjöri íþróttamanns UMSE 2014. Tíu einstaklingar eru í kjörinu að þessu sinni, en það eru í stafrófsröð:
• Andrea Björk Birkisdóttir, Skíðamaður UMSE 2014.
• Anna Kristín Friðriksdóttir, Hestaíþróttamaður UMSE 2014.
• Arnór Snær Guðmundsson, tilnefndur af stjórn UMSE fyrir góðan árangur í golfi.
• Guðmundur Smári Daníelsson, Frjálsíþróttamaður UMSE 2014.
• Haukur Gylfi Gíslason, Badmintonmaður UMSE 2014.
• Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson, Sundmaður UMSE 2014.
• Jón Elvar Hjörleifsson, Borðtennismaður UMSE 2014.
• Ólöf María Einarsdóttir, Golfmaður UMSE 2014.
• Sindri Ólafsson, Knattspyrnumaður UMSE 2014.
• Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, tilnefnd af stjórn UMSE fyrir góðan árangur í frjálsíþróttum.
Það eru stjórnir aðildarfélaga UMSE og stjórn og varastjórn UMSE, sem kjósa íþróttamanninn.