Næst komandi sunnudag hefst 5. starfsár Tónlistarhússins Laugarborgar. Þar kemur fram Þórunn
Lárusdóttir söng- og leikkona og ætlar hún að syngja fyrir gesti þekkt lög úr leikritum og söngleikjum.
Með henni leikur Hljómsveit hússins en hana skipa Daníel Þorsteinsson á píanó, Eiríkur Stephensen á kontrabassa
og Halldór Hauksson á trommur. Eins og venja er á upphafstónleikum starfsárs reiða kvenfélagskonur í Iðunni fram sunnudagskaffi að
tónleikum loknum. Miðaverð er kr. 2.500,-