Vakin er athygli á að íþrótta- og tómstundastykur barna í Eyjafjarðarsveit hefur verið hækkaður í 20.000 kr. fyrir árið 2019. Styrkurinn er veittur vegna æfinga- og þátttökugjalda fyrir börn á aldrinum 6-17 ára með lögheimili í sveitarfélaginu. Styrkhæft er hvers konar reglulegt íþrótta- og tómstundastarf.
Til að fá styrkinn greiddan þarf að senda á skrifstofu:
- Afrit af reikningi þar sem fram kemur fyrir hvaða íþrótta eða tómstund er verið að greiða og fyrir hvaða barn.
- Staðfestingu á greiðslu.
- Reikningsupplýsingar til að leggja styrkinn inn á.