Íslenski safnadagurinn er næstkomandi sunnudag þann 7. júlí. Söfn um allt land taka þátt með einum eða öðrum hætti
þátt í deginum.
Minjasafnið á Akureyri býður uppá leiðsögn kl. 14:00 og 15:00 þennan dag um sumarsýningu safnsins Norðurljós- næturbirta
norðursins. Sýningin samanstendur af málverkum og ljósmyndum. Málverkin eru eftir danska málarann Harald Moltke. Hann var í hópi
vísindamanna frá dönsku veðurstofunni sem kom gagngert til Akureyrar 1899 til að rannsaka norðurljósin. Ljósmyndirnar tók
áhugaljósmyndarinn Gísli Kristinsson frá Ólafsfirði á síðasta ári.
Í Gamla bænum Laufási verður boðið uppá leiðsögn um bæinn kl. 14:00. Áhugasamir gestir geta smakkað grasate og starfsfólk
Pólarhesta munu teyma undir yngstu gestunum milli kl. 14:00 og 16:00. Skáldahúsin þrjú á Akureyri Nonnahús. sem tileinkað er
barnabókarithöfundinum Jóni Sveinssyni - Nonna, Sigurhæðir, hús þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar og
Davíðshús, hús hins ástsæla skálds og rithöfundar Davíðs Stefánssonar, verða opin þennan dag. Benda má á
að opnunartími í Davíðshúsi og Sigurhæðum er frá kl. 13:00-17:00, í Laufási kl. 9:00-17:00 og Minjasafninu og Nonnahúsi kl.
10:00-17:00.
Frítt er á þessi söfn í tilefni dagsins.
Gaman er að benda á að Sjónlistamiðstöðin er einnig með frítt inn og eftirfarandi söfn í Eyjafirði eru með 2 fyrir 1 af aðgangseyri:
Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi, Akureyri
Hús Hákarla–Jörundar, Hrísey
Mótorhjólasafn Íslands, Akureyri
Byggðasafnið Hvoll, Dalvík
Náttúrusetrið Húsabakka, Svarfaðardal
Útgerðarminjasafnið á Grenivík
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Eyjafjarðarsveit
Íslenski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 1997 að frumkvæði safnmanna sjálfra. Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi
faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar og þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar
sem finna má á söfnum.
Það kennir að venju ýmissa grasa þennan dag á söfnunum í landinu en upplýsingar um dagskrá þeirra má nálgast á
facebook síðu íslenska safnadagsins, http://www.safnmenn.is/ og http://www.safnabokin.is/.
Meðfylgjandi mynd er tekin af ungum áhugasömum gestum á Minjasafninu á Akureyri.
- Stjórnsýsla
- Stjórnkerfi
- Skjöl og útgefið efni
- Fundargerðir
- Fjárhagsáætlun
- Ársreikningar
- Gjaldskrár
- Samþykktir
- Ábendingar
- Umsóknir
- • Íþrótta- og tómstundastyrkur
- • Lýðheilsustyrkur eldri borgara
- • Keppnis- og æfingaferðir
- • Heimaþjónusta
- • Skóladvöl utan sveitarfélags
- • Leikskóladvöl utan sveitarfélags
- • Starfsumsókn
- • Leyfi til hunda- og kattahalds
- • Umsókn um leiguhúsnæði
- • Félagslegt leiguhúsnæði
- • Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um akstursþjónustu
- • Umsókn um styrk til menningarmála
- • Umsókn um leyfi til að starfrækja dýrahótel/dýraathvarf í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um styrk vegna varmadælu
- Annað útgefið efni
- Eyjafjarðarsveit
- Skipulags- og byggingarmál
- Þjónusta
- Mannlíf