Íbúaþing um farsæla öldrun í Eyjafjarðarsveit verður haldið í matsal Hrafnagilsskóla laugardaginn 23. nóvember kl. 14 – 16.
Dagskrá:
Arndís Jóna Guðmundsdóttir iðjuþjálfi kynnir niðurstöður verkefnisins;
Blómleg búseta og þróun þjónustu:
Viðhorf, óskir og þarfir aldraðra í Eyjafjarðarsveit fyrir þjónustu og búsetuúrræði í
sveitarfélaginu.
Þetta er lokaverkefni til B.Sc prófs í iðjuþjálfunarfræðum og unnið upp úr könnun sem
lögð var fyrir aldraða í sveitarfélaginu á vordögum.
Framtíðarþing um farsæla öldrun:
Niðurstöður og tillögur að aðgerðum.
Kaffi og veitingar að hætti Valda kokks.
Öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar velkomið að taka þátt.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Félagsmálanefnd