Hillir undir lok framkvæmda í Hrafnagilshverfi

Fréttir
Framkvæmdir við gatnagerð í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdir við gatnagerð í Hrafnagilshverfi.

Nokkuð viðamiklar framkvæmdir hafa átt sér stað undanfarnar vikur í Hrafnagilshverfi þar sem breyta þurfti lagnaleiðum, koma fyrir nýjum lögnum/strengjum, afleggja og endurnýja eftir þörfum í nokkuð flókinni framkvæmd þar sem samræma hefur þurft vinnu nokkurs fjölda veitu- og fjarskiptafyrirtækja.

Framkvæmdin er liður í að tengja nýjar götur og hús í Hrafnatröð og Hólmatröð við veitur og gagnafyrirtæki. Þá er unnið að endurnýjun og stækkun stofnlagnar hitaveitu gegnum hverfið, meðal annars svo unnt verði að tengja Ölduhverfi inn á veituna fyrirtækisins þegar uppbygging þess hefst.

Brátt fara vegfarendur að sjá skurði lokast og aksturleiðir opnast að nýju. Við það dregur úr umfangi framkvæmdasvæðisins sem verður þá nokkuð staðbundið og minna ónæði hlýst af.
Endanleg verklok framkvæmdarinnar hafa þó ekki verið tímasett en þó svo að fljótlega muni draga úr umfangi framkvæmda þá má reikna með einhverjum óþægindum af þeim áfram á komandi vikum.

Á framkvæmdatímanum mun koma til þess að loka þurfi fyrir veiturnar þegar nýjar lagnir verða tengdar við stofnana. Norðurorka mun til að mynda innan skamms þurfa að loka fyrir hitaveituna í öllu hverfinu og má þá búast við að rofið vari bróðurpart dags. Það verður tilkynnt síðar.

Það er óhjákvæmilegt að stóru verkefni sem þessu fylgi rask og einhver óþægindi. Um leið og við þökkum íbúum og vegfarendum fyrir þolinmæðina þá bendum við á að hægt er að hafa samband við skrifstofu Eyjafjarðarsveitar fyrir frekari upplýsingar eða ábendingar um framkvæmdina.