Grenndarstöð opnuð í Hrafnagilshverfi

Fréttir
Grenndarstöð
Grenndarstöð

Grenndarstöð hefur nú verið komið fyrir við leikskólann Krummakot í Hrafnagilshverfi þar sem hægt er að losa sig við nokkra endurvinnsluflokka. Á svæðinu er hægt að losa sig við bylgjupappa, sléttan pappa (fernur), dagblöð, plastumbúðir, málmumbúðir, gler og rafhlöður. Þá mun verða hægt að losa sig við kerti innan skamms.