Framtíðarstarf við leikskólann Krummakot í Hrafnagilshverfi

Fréttir

LEIKSKÓLINN KRUMMAKOT Í HRAFNAGILSHVERFI auglýsir laust framtíðarstarf fyrir:

  • Leikskólakennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% ótímabundna stöðu. Æskileg starfsbyrjun er sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 76 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélagi.

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

    • Menntunar- og hæfniskröfur
      ● Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
      ● Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.
      ● Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur og tilbúin að ganga í ýmis störf.
      ● Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfunar.
      ● Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
      ● Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
      ● Ef ekki fæst leikskólakennari, þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2024
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is