Á fundi sveitarstjórnar 11. september var fyrirhugðum flutningi flugvallarins úr Vatnsmýrinni mótmælt. Eftirfarandi bókun var gerð á fundinum:
”Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur er nú í auglýsingu. Í tillögunni er gert ráð fyrir flutningi á
flugvellinum úr Vatnsmýrinni.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bendir á ábyrgð borgarstjórnar gagnvart landinu öllu og mótmælir því harðlega að
flugvöllurinn verði færður nema nýr flugvöllur verði tryggður með sambærilegu öryggi og í svipaðri fjarlægð frá
stjórnsýslu ríkisins og helstu þjónustu- og sjúkrastofnunum.”