Stjórn UMSE auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki til íþróttafólks innan UMSE. Styrkjunum er úthlutað eftir vinnureglum sem stjórn UMSE setur.
Hver einstaklingur getur einungis fengið einn styrk á hverju ári. Íþróttafólk getur sótt sjálft um styrkinn til stjórnar, en umsóknina þarf að staðfesta af forráðamanni íþróttafélagsins. Einnig geta aðildarfélög sótt um styrki fyrir hönd iðkenda. Úthlutað er tvisar á ári, í júní og október. Umsóknarfrestur er til 31. maí og 30. september.
Umsóknum þarf að skila til skrifstofu UMSE á þar til gerðum umsóknareyðublöðum.
Nánari upplýsingar um styrkina og vinnureglur um þær er að finna á vefsíðu UMSE . Þar er einnig að finna umsóknareyðublöð.
UMSE