Félag aldraðra í Eyjafirði tók þann 11. júní s. l. formlega við lyklavöldum í glæsilegri
félagsaðstöðu sem innréttuð hefur verið í húsnæði sem áður hýsti heimavist Hrafnagilsskóla.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Arnar Árnason, oddvita Eyjafjarðarsveitar og Guðnýju Kristinsdóttir, formann
Félags aldraðra Eyjafirði halda stutt ávörp við opnun aðstöðunnar.
Sveitarstjórn bauð félagsmönnum til kaffis í tilefni dagsins.