Byggjum brýr - brúarráðstefna Vegagerðarinnar. Skráning stendur yfir

Fréttir

Fjallað verður um brýr í víðu samhengi og litið til fortíðar, nútíðar og framtíðar. Saga brúa á Íslandi og framtíðaráskoranir verða til umfjöllunar, farið verður yfir stöðuna á einbreiðum brúm, sagt frá nýrri brú yfir Þorskafjörð og fyrirhuguðum brúm yfir Ölfusá og Fossvog. Þá verður hönnun brúa í tengslum við náttúruhamfarir, áhrif loftslagsbreytinga og áskoranir verktaka í brúargerð einnig til umfjöllunar. 

Meðal fyrirlesara eru erlendir brúarverkfræðingar, íslenskir sérfræðingar, verktakar í brúargerð og fræðimenn.

Ráðstefnugjald er 9.000 kr. og afsláttur veittur eldri borgurum og námsfólki. Innifalið í því er aðgangur, veitingar í kaffihléum, hádegisverður og móttaka að ráðstefnu lokinni.

Hér er dagskráin sem er fjölbreytt og spennandi.

Hér er hægt að skrá sig:
https://www.eventure-online.com/eventure/participant/invitee.form?898aa2a0-3a9b-4365-a1ff-dc92c29957e5

Hópskráning fer fram með því að senda póst á netfangið: thorunn@athygliradstefnur.is
Nánari upplýsingar eru á vef Vegagerðarinnar.