Fimmtudaginn 13. mars fór fram 93. ársþing UMSE. Þingið var haldið að Rimum í Svarfaðardal í umsjón Umf. Þorsteins
Svörfuðar. Vel var mætt á þingið og voru þátttakendur alls 44, fulltrúar frá aðildarfélögum og stjórn, gestir og
starfsmenn þingsins. Þess má geta að fulltrúar frá 11 af 13 aðildarfélögum voru á þinginu, auk fulltrúa stjórnar og var
mætingin 80% af mögulegum heildarfjölda fulltrúa sem telst mikil aukning frá fyrri árum. Var þetta í fyrsta sinn sem þingið er haldið
að kvöldi til á virkum degi, sem skýrir líkleg góða þátttöku að hluta til. Sammæltust viðstaddir um að þessi
tilhögun væri gæfuspor.
Þingið gekk vel fyrir sig og voru umræður bæði líflegar og málefnalegar. Alls voru 16 tillögur samþykktar, sem munu eiga þátt
í að móta starf UMSE næsta árið.
Að þessu sinni var kosið um formann, ritara og meðstjórnanda í stjórn UMSE. Nokkrar breytingar urðu á stjórninni, en Óskar
Þór Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Einnig lét Kristlaug María Valdimarsdóttir af störfum sem ritari
Sambandsins. Nýr formaður UMSE var kjörin Bjarnveig Ingvadóttir frá Umf. Svarfdælum, en hún snýr nú aftur til starfa innan
íþróttahreyfingarinnar eftir nokkurra ár hlé. Ritari var kjöri Sigrún Finnsdóttir, Umf. Smáranum. Þorgerður
Guðmundsdóttir, Umf. Samherjum, var endurkjörin sem meðstjórnandi. Í varastjórn, voru endurkjörin Guðrún Sigurðardóttir, Umf.
Svarfdæla og Sigurður Eiríksson, Umf. Samherjum. Svanbjört Brynja Bjarkadóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn
og var í hennar stað kjörin Gunnar Ingi Ómarsson, Umf. Æskunni. Aðrir sem sitja í stjórn UMSE eru Edda Kamilla Örnólfsdóttir,
varaformaður, frá Hestamannafélaginu Funa og Einar Hafliðason, gjaldkeri, frá Umf. Þorsteini Svörfuði.
Á þinginu var að venju veittur Félagsmálabikar UMSE. Bikarinn er veittur af stjórn til þess félags sem talið er hafa staðið sig hvað
best varðandi innrastarfi félagsins, bæði varðandi íþróttastarf og almennt félagsstarf. Að þessu sinni hlaut Umf. Smárinn bikarinn
og tók formaður félagsins, Jónína Garðarsdóttir, við viðurkenningunni .
Þinggerðin verður aðgengilega á vefsíðu Sambandsins, www.umse.is, innan skamms.
UMSE færir öllum þeim fulltrúum sem tóku þátt í þinginu þakkir fyrir vel unnin störf. Einnig er fráfarandi
stjórnarfólki þökkuð þeirra störf í þágu Sambandsins og óskað velfarnaðar.
- Stjórnsýsla
- Stjórnkerfi
- Skjöl og útgefið efni
- Fundargerðir
- Fjárhagsáætlun
- Ársreikningar
- Gjaldskrár
- Samþykktir
- Ábendingar
- Umsóknir
- • Íþrótta- og tómstundastyrkur
- • Lýðheilsustyrkur eldri borgara
- • Keppnis- og æfingaferðir
- • Heimaþjónusta
- • Skóladvöl utan sveitarfélags
- • Leikskóladvöl utan sveitarfélags
- • Starfsumsókn
- • Leyfi til hunda- og kattahalds
- • Umsókn um leiguhúsnæði
- • Félagslegt leiguhúsnæði
- • Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli
- • Umsókn um leyfi til búfjárhalds í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um akstursþjónustu
- • Umsókn um styrk til menningarmála
- • Umsókn um leyfi til að starfrækja dýrahótel/dýraathvarf í Eyjafjarðarsveit
- • Umsókn um styrk vegna varmadælu
- Annað útgefið efni
- Eyjafjarðarsveit
- Skipulags- og byggingarmál
- Þjónusta
- Mannlíf