Kynningarbréf frá Tryggingarstofnun vegna barnalífeyris vegna náms/starfsþjálfunar.
Barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar þarf að sækja um á hverri önn og á skólavottorði þarf að koma fram námsárangur á síðustu önn ásamt staðfestingu á fjölda eininga á næstu önn. Mikilvægt er að tilgreint sé hvort um hefðbundnar einingar eða Fein-einingar sé að ræða.
Mánaðarleg upphæð greiðslna á árinu 2016 er 29.469 kr.
Sótt er um á tr.is Mínar síður.