Aðventudagur í Gamla bænum Laufási er orðinn fastur liður í jólaundirbúningi margra Eyfirðinga og gesta þeirra en hann verður haldinn sunnudaginn 2. desember kl 13:30-16:00. Þá gefst gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu.
Undirbúningur jólanna hefst með jólastund fyrir alla fjölskylduna í Laufáskirkju kl 13:30 í umsjón sr. Bolla
Péturs Bollasonar. Barnakórar syngja jólalög undir stjórn Sigríðar Huldu Arnardóttur og Sigrúnar Mögnu
Þórsteinsdóttur. Eva Margrét og Þóra Björk leika ljúfa tóna á harmonikku og fiðlu.
Gamli bærinn Laufás iðar af lífi þennan dag. Það logar kátt á hlóðum og kraumar vel í feitinni á meðan
laufabrauðið er skorið og steikt. Stórir og smáir keppast við að vinna sína vinnu, tólgarkerti verða steypt og börn á öllum aldri
geta gert jólaskraut eins og tíðkaðist áður fyrr og gripið verður í spil. Ilmur af nýreyktu hangikjöti læðist um
híbýlin, jólasaga verður sögð í baðstofunni og kvæðasöngur með jólalegum blæ mun óma um alla sveit. Þetta mun
án efa vekja athygli jólasveinanna sem eru á leið til byggða. Þeir munu leika við hvern sinn fingur gestum og gangandi til skemmtunar.
Í Kaffi Laufási geta gestir keypt sér veitingar um leið og þeir njóta þess að hlusta á jólalög í flutningi Evu
Margrétar og Þóru Bjarkar.
Það eru Þjóðháttafélagið Handraðinn, Kvæðamannafélagið Gefjun og velunnarar Laufáss sem gera það
mögulegt að hægt er að upplifa jólaundirbúning gamla sveitasamfélagsins á þennan hátt.
Aðgangseyrir kr. 800 fyrir fullorðna. Börn 15 ára yngri fá frítt inn
KEA-kortið veitir 50% afslátt!
Með afar góðri kveðju frá Minjasafninu á Akureyri
Kristín Sóley
Kristín Sóley Björnsdóttir
Kynningarstjóri
kristinsoley@minjasafnid.is
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58
600 Akureyri
s.462-4162
http://www.minjasafnid.is/